Við erum systurnar Linda, Aníta og Karen. Pabbi okkar heitir Ástmar og mamma Íris. Við eigum hálfsystur sem heitir Birta Líf sem er ellefu ára. Hún er alltaf ótrúlega góð við okkur. Svo eigum við líka hundasystur sem heitir Tanja. Hún er chihuahua hundur og er orðin 8 ára gömul.

Linda Wigelund fæddist 5. maí 2006. Hún var skírð í höfuðið á móðurömmu sinni sem heitir Linda og var hún ekki lítið montin að fá nöfnu.

Aníta Wigelund og Karen Wigelund fæddust 9.apríl 2011.


Allar heitum við Wigelund sem er færeyska ættarnafnið hennar mömmu. Pabba fannst ekki annað hægt en að Linda væri skírð því og að afi Pétur fengi svona hálfpartinn nöfnu líka:) Þegar Aníta og Karen komu svo í heiminn kom svo ekki annað til en að þær væru líka skírðar Wigelund.


Linda er skýr og dugleg lítil stelpa sem veit alveg hvað hún vill. Hún er mjög atorkusöm lítil "vinnukona" sem er sífellt á þönum. Hún er blíð og góð og er með mikið "móðureðli" í sér. Hún bar snemma mikla umhyggju fyrir dúkkunum sínum og hugsar einstaklega vel um þær þrátt fyrir ungan aldur:) Henni finnst skemmtilegast að skoða bækur, kubba, púsla, lita og leika með dúkkurnar sínar.

Þessi heimasíða er fyrir vini og vandamenn til að fylgjast með Lindunni okkar. Endilega verið dugleg að kvitta í gestabókina því það er svo gaman að sjá hverjir eru að fylgjast með okkur :)